01desember

WWW.BLOG.CENTRAL.IS/HANNASTELLA

Jæja.. ég er komin með

NÓG af þessu

bloggar.is dæmi hehehe..

ég er komin með nýja síðu

sem ég

ætla að halda mig við..

FOLLOW ME Svalur

http://www.blog.central.is/

hannastella


(á eftir að gera hana

flottari sko)

Kv. Hanna panna.

01. desember 2006 klukkan 06:49
Hanna Stella Georgsdóttir
Engin athugasemd
27nóvember

Allir að fylla þetta út :D

Jæja, þið sem hafið ekkert betra að gera... endilega fyllið þetta út Ullandi

1. Miðnafnið þitt:

2. Aldur:

3. Single or Taken:

4. Uppáhalds bíómynd:

5. Uppáhalds lag:

6. Uppáhaldshljómsveit:

7. Dirty or Clean:

8. Tattoo eða göt:

9. Þekkjumst við persónulega?

10. Hver er tilgangurinn með lífinu?

11. Myndiru bakka mig upp í slagsmálum?

12. Myndiru þeigja yfir leyndarmáli ef það skipti mig máli?

13. Besta minningin þín um okkur?

14. Myndir þú gefa mér nýra?

15. Segðu eitthvað skrýtið um þig:

16. Myndir þú hugsa um mig ef ég væri veik?

17. Getum við hist og bakað köku?

18. Hefuru heyrt kjaftasögu um mig nýlega?

19. Talaru eða hefuru talað illa um mig?

20. Finnst þér ég góð manneskja?

21. Myndir þú keyra með mér hringinn í kringum landið?

22. Finnst þér ég aðlaðandi?

23. Hverju myndiru vilja breyta í mínu fari?

24. Í hverju sefuru?

25. Kæmiru í heimsókn af tilefnislausu, bara til að chilla?

26. Myndir þú koma á stefnumót ef ég myndi bjóða þér?

27. Ef ég ætti einn dag ólifaðann, hvað myndum við gera?

28. Ætlaru að setja þetta á þína síðu svo ég geti fyllt þetta út?

Ein mynd svona í lokin:


Hvernig er heimurinn að verða í dag? Hissa

Hanna kveður að sinni og dregur auga í pung Glottandi

27. nóvember 2006 klukkan 07:23
Hanna Stella Georgsdóttir
4 athugasemdir
24nóvember

Margt og mikið búið að ské síðan síðast...

Mamma Mía... here we go again Ullandi

Það er svo mikið búið að ské undanfarið að ég veit ekki hvar ég á að byrja.

En allavega..
Við Líney Mist fórum suður fyrir tveimur vikum síðan og vorum í borginni á meðan mamma og pabbi voru úti á Kanarý.
Villa tengdamamma mín hringdi í mig þegar við vorum á leiðinni suður, vorum á Kjalarnesi þegar hún hringdi.
Hún sagði við mig að ef ég vildi kveðja Önnu Siggu þá yrði ég að koma strax uppá gjörgæslu vegna þess að hún ætti bara nokkra klukkutíma eftir.
Pabbi brunaði með mig þangað og ég labbaði inná spítalann með þvílíkan kvíðahnút í maganum.
Ég mætti Tönju og fleiri þarna í anddyrinu og ég fór svo með henni upp á gjörgæsluna.
Í fjölskylduherberginu var öll fjölskyldan saman komin og guð minn góður hvað það var erfitt að sjá hvað allir áttu erfitt.
Svo fór ég með Tönju inn til mömmu hennar og ÚFF...
Það var svo erfitt að sjá mömmu hennar svona rosalega veika og tengda við fullt af tækjum og tólum.
Tanja sagði mömmu sinni að ég væri komin og ég gat ekki ráðið við tárin..
ég reyndi samt að vera eins sterk og ég gat.
Ég sagði við Önnu Siggu að mér þætti mjög vænt um hana og þakkaði henni fyrir allt sem hún hafði gert fyrir mig og Danna, ég sagði henni hvað mér finndist hún vera sterk.
Ég sagði henni að Danni vildi óska þess að hann hefði getað komið og að honum þætti  mjög vænt um hana.
Svo opnaði hún augun og þegar hún sá mig þá brosti hún svo fallega til mín...
hún heyrði allt sem maður sagði við hana.
Þetta bros mun ég geyma í hjarta mínu þar til ég hitti hana á ný.
Ég strauk á henni hendina og talaði við hana en svo kom að því að ég varð að fara..
það var svo erfitt að þurfa að kveðja hana í hinsta sinn.
Hún var alltaf einsog önnur mamma mín, heimilið þeirra var griðarstaður margra..
það var svo gott að fara til þeirra og tala um allt og ekkert, allir voru svo velkomnir til þeirra og aldrei gerðu þau upp á milli neins..
allir skiptu máli í þeirra augum og þess vegna leið manni vel hjá þeim.
Ég gleymi aldrei þessari konu, hún var yndisleg og svo góðhjörtuð.. hún rétti fram hjálparhönd án þess að hugsa sig tvisvar um.. hún vildi allt fyrir alla gera.
Hún gaf sér líka alltaf tíma til að leika við Líney Mist þegar við hittum hana...
Líney hafði aldrei hlegið eins mikið og þegar Anna Sigga var að fíflast í henni.


Anna Sigga og Líney Mist í fermingunni hans Gabríels.


Líney hló og hló :D Anna Sigga gaf henni þennan kjól :)

Við Danni fórum svo saman í jarðarförina, hann fékk að koma sem betur fer.
Hann fékk líka að fara með mér í erfidrykkjuna.
Jarðarförin var mjög erfið enda þótti öllum svo vænt um Önnu Siggu.
Það var mikið grátið.
Þetta var mjög falleg athöfn.

Ég trúi því varla að hún sé dáin, ég vil ekkert trúa því.


Anna Sigga :*

Ég er svo stolt af Tönju og systur hennar.. og pabba þeirra,
þau eru svo dugleg í þessari sorg.
En þetta er mikill missir fyrir þau.

Tanja kom til mín daginn sem ég fór norður og kvaddi mig og Líney Mist,
og hún sagði við mig: Ég er með sendingu til þín, kjóllinn hennar mömmu.
Og ég leit í pokann sem hún rétti mér og ég fór næstum að gráta..
Mamma hennar hafði lánað mér rosalega fallegan kjól í vor þegar ég var hjá þeim í viku.
Og ég var algjör skvísa í honum og mömmu hennar fannst ég svo flott í honum.
Og hún gaf mér kjólinn eftir að mamma hennar dó...
æj mér þykir ekkert smá vænt um það,
enda mun ég passa kjólinn súper vel.
Ég ætla að vera í honum á aðfangardag, Anna Sigga hefði sko viljað það.


Ég og Tanja mín :*


Hey útí allt aðra sálma...
Ég verð að segja ykkur frá þessu

Á föstudagskvöldið síðasta þá fórum við Dagný til Tönju og Helga var með okkur líka.
Og við sátum bara og spjölluðum og fengum okkur smá í glas.
Svo fór Tanja til kærastans og við Dagný og Helga vorum að reyna að redda okkur fari heim eða á rúntinn eða eitthvað.
Svo ég hringdi í vin minn og hann kom og náði í okkur.
Hann skutlaði Helgu heim og við Dagný kíktum smá rúnt með honum og vini hans...
svo langaði okkur Dagný bara að fara heim og hann skutlaði henni fyrst heim og svo vini sínum og svo fór hann og sýndi mér íbúðina sem honum langaði að kaupa sér.
Svo á leiðinni þaðan þá sáum við eitthvað undarlegt á götunni og Garðar stoppaði og bakkaði og viti menn... þarna á götunni lá kona og hún hreyfði sig ekki.. og það var brotin bjórflaska við hliðina á henni.
Nota Bene... það var 11 STIGA FROST ÚTI !!
Hann stökk út og athugaði með hana og svo eftir smá stund þá vaknaði hún og stóð upp með hans hjálp.
Svo sagði hún bara: DONT TOUCH ME og hann kom bara inní bíl og hringdi í 112 því að það er alveg á hreinu að þessi kona hefði ALDREI komist heil heim til sín í þessu ástandi í þessum ógeðslega kulda.
Hún labbaði svo áfram eða svigaði öllu heldur...
við erum að tala um STÓRsvig..
við keyrðum á eftir henni og Garðar talaði við lögguna á meðan.
Svo labbaði hún meðfram ánni sem var þarna og ég bara: eeeehhhh hún á eftir að DETTA í ánna..
og viti menn... hún svigaði útí ánna konugreyið..
bara beint á hliðina niður grjóthlíðina og ofan í ÍSKALDA ánna.
Garðar stökk út og stökk yfir vegrið og skurð og fór að ánni og náði konunni upp,
ég sat þarna frosin og heyrði bara öskrin í konunni.
En ég ákvað nú að gera eitthvað gagn og hljóp út í frostið í STUTTU pilsi og PINNASTÍGVÉLUM...
ég tók símann hans sem lá þarna á bakkanum og talaði við 112 sem var í símanum.
Hann kom svo konunni uppá bakkann og þá kom löggan loksins og löggukallinn ætlaði að vera rosa hetja og stökkva yfir vegriðið og skurðinn en það tókst ekki betur en svo að hann missteig sig og var að drepast í fætinum... hehehe.
Svo var þarna löggukona með honum og hún og Garðar komu konunni uppá veginn og inní löggubílinn.
Kellingin sagði bara: "Dont touch me" og var ísköld og henni var íllt líka.
Hún var sko dauðadrukkin og ábyggilega eitthvað meira en það líka.
Svo kom sjúkrabíll og allt heila klabbið.
En ég vona að konan sé í gúddí fílíng núna og hugsi sig tvisvar um áður en hún fer á djammið aftur í svona miklum kulda.

Við Líney Mist fórum vestur til Danna um eina helgina og það var bara frábært að sjá hann.
Við fórum til hans á laugardeginum og gistum svo hjá Ellu og fjölsk. á Hellissandi um nóttina og fórum svo aftur til Danna á sunnudeginum.
Það er svo æðislegt að sjá Danna og Líney Mist saman, þau eru svo LÍK.. hehehe.
Líney sá bara hann og ég varð að einhverju aukaatriði hjá henni,
hún fór að gráta ef hann rétt svo ætlaði að skreppa fram á klósettið.
Hún dýrkar pabba sinn og hún þekkir hann alveg og veit að þetta er pabbi hennar.
Hún sagði bara: babba, babba, babba yfir þessa helgi.
Það var rosa gaman hjá okkur og vá hvað ég sakna hans núna,
það er ömurlega erfitt að hafa hann ekki hjá okkur.
Ég er svo stolt af honum að ég get ekki líst því,
hann er svoooo breyttur frá A-Ö og þeir sem trúa því ekki fá heldur betur að kyngja stoltinu þegar hann loksins kemur heim og þá fær fólk að sjá hann í réttu ljósi.
Æj Líney Mist fór að hágráta þegar við vorum að fara frá Danna á laugardeginum, þegar hann lokaði hurðinni á bílnum þá grét hún bara.
Æj hún er algjör pabbastelpa.. sem er bara ÆÐISLEGT.


Danni og Líney Mist.


Æj hún var svo glöð að sjá pabba sinn :)


Litla fjölskyldan loksins saman :) (hvaða svipur er þetta á barninu?) hehe


Gefa pabba sínum smá kex áður en við fórum... og fór svo að gráta :/

Ég fór svo ein til hans á mánudeginum, viku seinna.
Ég ætlaði til hans á sunnudeginum en það var svo brjálað veður að ég komst ekki.
Það var rosa gott að vera ein með honum og við höfðum það kósí!!
Ég sakna hans svo mikið ... vááá!!

Við gerðum ýmislegt í borginni, ég eiginlega nenni ekki að skrifa um það allt núna því þetta er orðið frekar langt blogg... hehehehe!!

Við erum komnar heim í snjóinn og það er bara rosa fínt.
Alltaf gott að komast aftur heim til sín.


Sjáið skvísuna í nýja pilsinu sem hún fékk frá ömmu sinni og afa þegar þau komu heim frá Kanarý :)


Jæja, hafið það bara gott og takk fyrir öll kommentin, endilega haldið áfram að skilja eftir ykkur spor gott fólk :)

Bestu kveðjur, Hanna panna :)

24. nóvember 2006 klukkan 03:39
Hanna Stella Georgsdóttir
10 athugasemdir
06nóvember

Reykjavík, Here I Come :D

Halló kalló...

Ég vil bara segja ykkur að ég er að fara til Rvk á morgun og ég get ekki beðið eftir að hitta allt fólkið fyrir sunnan. Ég sakna þeirra svo mikið... Óákveðinn
Svo ætlum við Líney Mist að fara til Danna á laugard og sunnud. Það verður bara æði að sjá hann. Skömmustulegur

Ég er ekki að nenna að klára pakka, þessvegna er ég hér að tuða... híhíhíhí !!

Ég fer í heimsókn til Önnu Siggu á morgun eða hinn með Tönju.
úff hvað það verður erfitt að sjá hana svona veika...
þetta verður líklega í síðasta skiptið sem ég sé hana...
þetta verður eitt af því erfiðasta sem ég hef gert. Gráta

Allavega...
saknið mín ekki of mikið hérna fyrir norðan..
ég á ekki eftir að sakna Ólafsfjarðar allavega.. hahaha Ullandi

Hvað um það, ég ætla að halda áfram að pakka...
vá hvað það þarf að ferðast með mikið þegar maður á barn Hissa

Hafið það bara gott..
ég á allavega eftir að hafa það ágætt held ég bara! Svalur

Hanna Is Out -Of Order...
nei djók Tala af sér

Þetta er svo asskoti fyndð.. sjáið Hlæjandi

06. nóvember 2006 klukkan 05:27
Hanna Stella Georgsdóttir
1 athugasemd
04nóvember

Smá djók =)

Hvernig gera á konu hamingjusama :
Það er ekki erfitt, til að gera konu hamingjusama, þarftu bara að vera:

1. vinur

2. félagi

3. ástmaður

4. bróðir

5. faðir

6. húsbóndi

7. yfirmaður

8. rafvirki

9. trésmiður

10. pípari

11. handlaginn

12. skreytimeistari

13. stílisti

14. sérfræðingur í kynlífi

15. mannþekkjari

16. sálfræðingur

17. hagfræðingur

18. reiknimeistari

19. góður huggari

20. góður hlustandi

21. skipuleggjari

22. góður faðir

23. snyrtilegur

24. samúðarfullur

25. sportlegur

26. hlýr

27. skemmtilegur

28. aðlaðandi

29. snillingur

30. fyndinn

31. hugmyndaríkur

32. mjúkur

33. sterkur

34. skilningsgóður

35. þokkafullur

36. prúður

37. metnaðarfullur

38. hæfileikaríkur

39. þolgóður

40. skynsamur

41. trúr

42. ábyggilegur

43. ástríðufullur

...og gleymir aldrei að:

44. gefa henni gjafir reglulega

45. fara með henni að versla

46. vera heiðarlegur

47. vera örlátur

48. að stressa hana ekki

49. horfa ekki á aðrar konur

og um leið þá verðurðu líka að:

50. veita henni mikla athygli, og hugsa ekki mikið um sjálfan þig

51. gefa henni allan tíma sem hún þarf

52. gefa henni mikið frelsi, ekki hafa áhyggjur af því hvert hún fer

53. Það er mjög áríðandi að gleyma aldrei:

afmælisdögum og brúðkaupsdögum
og plönum sem hún hefur ákveðið

TIL AÐ GERA KARLMANN HAMINGJUSAMANN :

1. Gefa honum að borða

2. Sjá til að hann fái það reglulega

3. og þegja svo?.




Þessi mynd er svooo sönn.. hehehehe Ullandi


Jæja, ég bið að heilsa ykkur í bili,
kv. Hanna grínisti Svalur

04. nóvember 2006 klukkan 06:44
Hanna Stella Georgsdóttir
3 athugasemdir
02nóvember

Pælingar...

Góðan daginn...

Ég ákvað að blogga því að ég nenni ekki að gera neitt annað.

Ég er eitthvað agalega löt í dag,
en það breytist þegar klukkan verður aðeins meira en þetta.. hehehe
ó nei, ég er sko ekki morgunhani.

Það er lítið að frétta héðan úr blokkinni, hehe...
allt gengur sinn vanagang held ég bara,
svona fyrir utan óstöðvandi leti og slen í mér.

Það eina sem kemst að í hausnum á mér er hvað mig hlakkar mikið til að komast til Reykjavíkur og svo til Danna um næstu helgi (helgina eftir þessa helgi)
Við förum líklega suður á sunnudaginn.
Það verður GÓÐ tilbreyting.

Mér finnst einsog partur af mér hreinlega bara deyji þegar ég er hérna á Ólafsfirði lengi í einu..
fæ bara innilokunarkennd hérna.

Ég er ekki frá því að ég haldi alltaf að mér eigi eftir að líða betur einhversstaðar annarsstaðar en ég er....
en ég flý víst ekki sjálfa mig...
ég fylgi hvert sem ég fer, hversu langt sem ég fer frá Ólafsfirði þá losna ég ekkert við sjálfa mig.

Æj svona er maður nú skrítið apparat.

Ég hef mikið spáð í því hvar ég væri eiginlega án dóttur minnar...
mig langar eiginlega ekkert að vita svarið við því samt.
En maður er alltaf að pæla, maður hefur ekkert annað að gera.

Ég ætla sko að gera eitthvað skemmtilegt í borginni,
við mæðgurnar eigum eftir að hafa það fínt og hitta allt fólkið okkar fyrir sunnan.

Svo ætla ég að reyna að fá að fara til hennar Önnu Siggu á spítalann,
mér finnst hræðilegt að hugsa til þess að ég eigi kannski aldrei eftir að sjá hana aftur
ef ég fer ekki til hennar núna.

Já, lífið er sko óútreiknanlegt, maður veit aldrei hvað gerist næst.
Ætti maður þá ekki að gera eins gott úr þeim tíma sem maður á?
Hætta þessu endalausa tuði um hvað maður á ekki og hvað lífið gæti orðið gott ef þetta og hitt væri öðruvísi?
Ég held að maður velti sér alltof mikið uppúr fortíðinni, ætti maður ekki frekar að einblína á framtíðina og reyna að gera sem best úr henni?
Afhverju er maður að eyða tíma í að vera ósáttur við hina og þessa...
og svo kannski missir maður þá manneskju og hvernig verður maður þá?
-Með endalaust samviskubit yfir því hvernig maður kom fram við viðkomandi og óskar þess að maður geti farið til baka og breytt því sem maður sagði eða gerði, eða sagði ekki og það sem maður gerði ekki!!

Ég held að ég ætti að fara hugsa minn gang og vera þakklát fyrir það sem ég á og reyna að vera sátt við sjálfa mig og aðra.

Ég er auðvitað þakklát fyrir dóttur mína og án hennar gæti ég ekki verið.
En hún lærir af mér og ég vil geta kennt henni að vera sátt við sjálfa sig og gera sem best úr lífinu.
Og ef ég geri það ekki sjálf, hvað lærir hún þá?

Maður heldur alltaf að maður verði svo hamingjusamur  þegar maður er búinn að kaupa bíl, búinn að fara í utanlandsferðina langþráðu, búinn að koma sér vel fyrir, búinn að gera allt sem maður vill svo mikið...

EN hamingjan er ekki áfangastaður!
Er ekki akkúrat núna tíminn til að vera hamingjusamur og njóta þess sem maður á?

Það er ótrúlegt hvað maður getur velt sér uppúr öllu,
maður ætti að vera hamingjusamur Í DAG!

Jæja, ég er hætt þessum vangaveltum í dag.
Og í DAG ætla ég að vera ánægð með það sem ég á og njóta þess að vera til með fallegu stelpunni minni.


LÍNEY MIST SÆTUST :*


Verið góð við hvort annað þangað til næst,
annars er mér að mæta.. múhahahahaha.

Kv. Hanna Bloggari.

02. nóvember 2006 klukkan 17:09
Hanna Stella Georgsdóttir
1 athugasemd
30október

Ég sakna þín Danni minn

Ég sakna þín svo mikið Danni,
það er ólýsanlega erfitt að hafa þig ekki hjá okkur. Gráta
Ég hlakka svoooooooo mikið til að koma til þín, þá sérðu líka Líney Mist ganga..
þú hefur aldrei séð hana labba Óákveðinn
Það verður best í heimi þegar við komum til þín Brosandi

Ég er svo stolt af þér Danni, ef fólk bara vissi hvað þú ert breyttur maður og duglegur.
Það verða allir hissa þegar þeir sjá þig svona breyttan.
Það verður allt betra þegar þú kemur heim, allt hefur sínar ástæður.

Mér er sama hvað fólki finnst, það fólk sem efast um þig veit bara ekki betur.
Ég þekki þig og ég VEIT hversu breyttur þú ert og duglegur.

Ég elska þig Skömmustulegur
Takk fyrir að vera svona duglegur og góður!!!

Þín Hanna. Koss




Ég og Danni í sumar Koss




Danni ástin mín Brosandi
30. október 2006 klukkan 02:03
Hanna Stella Georgsdóttir
3 athugasemdir
25október

Ójá... Ég er á lífi :D

Góðan daginn æstu aðdáendur Svalur

Ég er mætt og nú verður ekki aftur snúið,
ný byrjar ballið SKO Tala af sér

Og auðvitað tæmist á manni heilabúið þegar maður ætlar loksins að blogga Óákveðinn

En já, það er margt búið að gerast hjá mér síðan ég bloggaði síðast...
Líney Mist er orðin 1. árs og við héldum að sjálfsögðu afmæli.
Það var rosa gaman og Líney fannst ekki leiðinlegt að fá svona marga í heimsókn.
Ég er ekkert smá stolt af því að eiga svona æðislega stelpu,
hún er svo mikill gullmoli Koss


Líney Mist sætust :*

Amma hennar fyrir sunnan og Dagný og Gabríel ætluðu að koma í afmælið en því miður komust þau ekki.
Tanja elskan mín sagði mér seinna að hún ætlaði að koma SURPRISE í afmælið en það var auðvitað ekki hægt vegna þess sem gerðist um daginn Gráta

Anna Sigga (Ömmusytir hennar Líneyjar), mamma hennar Tönju veiktist mjög mikið. Gráta
Hún er með krabbamein sem hún vissi ekki að hún væri með, fyrr en hún veiktist mjög snögglega og mikið og hún er kannski að fara frá okkur Gráta
Hún er á gjörgæslu í öndunarvél og er haldið sofandi og er mjög veik,
það er ekki hægt að lifa lengi með þetta krabbamein sem hún er með Gráta
Hún er ekki orðin fimmtug einu sinni og þetta er allt mjög sorglegt.

Mér þykir svo vænt um þessa konu,
hún var einsog hin mamma mín þegar ég bjó í Mosó og ég var alltaf velkomin til þeirra. Skömmustulegur
Ég er ánægð með að hafa farið til þeirra í sumar og ég var hjá þeim í heila viku,
og ég sagði henni hvað mér þykir vænt um hana. Brosandi
Ég er líka ánægð með að hafa farið með Líney í heimsókn til hennar þegar ég fór síðast með hana suður. Brosandi

Þetta er svo góð kona sem á allt það besta skilið og hún á mann og tvær ungar stelpur, önnur þeirra er besta vinkona mín.. hún Tanja. Koss

Það er mikið lagt á þau núna og ég bið um að Guð sé með þeim og hjálpi þeim í gegnum þetta.

Tanja var svooooooooooo góð við mig þegar ég bjó í Mosfellsbæ,
við vorum límdar saman á tímabili, sérstaklega þegar ég var ófrísk. Ullandi

Þá hlustaði hún á tuðið í óléttri kellingu allan daginn, híhíhí..
Einsog:

"Æj Tanja mig langar svoooooooo mikið í melónu, viltu keyra mig útí búð, ég verðððð að fá melónu NÚNA!"
"
Æj Tanja, mér er svooo heitt, viltu slökkva á helvítis miðstöðinni"

"TANJJJJAAA ekki fara svona hratt yfir hraðahindrunina, ég er með svooooo vonda samdrætti..."

"Tanja, viltu ná í mig og keyra mig útí búð... ég VERÐ að fá mér ÍS!"

Ég veit ekki hvar ég væri ef hún hefði ekki verið svona mikið með mér þegar ég var ólétt... og svona góð við mig alltaf! Skömmustulegur
Enda er Tanja hinn pabbi hennar Líneyjar
Hlæjandi


Ég og Tanjan mín :*

Æj ég vona að það gerist kraftaverk og að Anna Sigga fái að fara heim og lifa áfram.
En maður þarf samt að búa sig undir það versta líka... Óákveðinn
EN maður verður samt að halda í vonina!!
Glottandi


Anna Sigga :*

En útí aðra sálma....
ég fór á ball á laugardaginn. Svalur
Það var bara gaman og ég var ekkert svo ölvuð. Ullandi
Var algjör skvísa sko... hehehehe!

Við Líney ætlum að fara suður til Reykjavíkur 6. nóv. Hlæjandi
Fáum far með mömmu og pabba, þau eru að fara til Canary og verða þar í 2. vikur.
Ég fæ að hafa bílinn þeirra á meðan og við Líney ætlum að fara til Danna allavega tvo daga. Hlæjandi
Guð minn góður hvað ég SAKNA hans mikið. Gráta
Það er svo erfitt að sjá hann svona sjaldan og hann hefur ekki séð Líney Mist síðan í júlí. Gráta
Hann saknar hennar sko mjög sárt!!! Gráta
En ég er svo stolt af honum og hann klárar þetta dæmi með stæl og þá verðum við ONE BIG HAPPY FAMILY! Svalur
Það er alveg þess virði að bíða eftir honum og styðja hann í gegnum þetta.
Ég ELSKA hann!!!!!!!!!!!!! Skömmustulegur
Svo ætlum við að kíkja í heimsókn til sem flestra fyrir sunnan. Brosandi

Hey...
ég er að fara á BINGÓ á morgun í Tjarnarborg..
er maður að eldast eða? Glottandi
Nei segi svona, það fer alltaf allur bærinn á BINGÓIÐ hérna.
Nema mamma, hún ætlar að passa! Hlæjandi

Oj maður, það er ógeðslega kalt hérna og það er mikill SNJÓR...
Andskotans, ég hata snjó! Öskrandi

Jæja, ég ætla ekki að hafa þetta lengra núna,
ég skrifa meira fljótlega. Ullandi

Og auðvitað fáið þið svo eina mynd af mér í lokinn, ég veit að þið viljið sjá mig.. múhahahahahaha Svalur



Hafið það bara gott og verið hress og ekkert stress...
ég er alltaf svaka róleg og yfirveguð sko!  Skömmustulegur Saklaus

OG EKKI GLEYMA AÐ KOMMENTA GOTT FÓLK!!
25. október 2006 klukkan 17:47
Hanna Stella Georgsdóttir
11 athugasemdir
07október

Hallú =)

Hæhæ..

Ég veit svosem ekkert hvað ég á að skrifa... Ullandi

Allt gengur sinn vanagang bara,
við skvísurnar erum búnar að vera dunda okkur inni í þessu leiðindarveðri.

Ég man að fyrir ári síðan þá var allt á kaf í snjó hérna á Ólf,
ég hafði einmitt svo miklar áhyggjur af því að komast ekki inná sjúkrahús þegar ég myndi fara af stað.. s.s. fæða Líney Mist.
Þá var blindbylur og alles.

En svo lagaðist nú veðrið og ég komst inná sjúkrahús þegar ég fór af stað, þann 14. okt. Hlæjandi
Núna er enginn snjór hérna, það hefur bara snjóað í fjöllin.

En ég held nú að snjórinn fari að koma, það er orðið svo kalt og leiðinlegt veður. Glottandi

Litla daman mín er að verða 1. árs eftir viku. Hissa

Mig hlakkar rosa mikið til, það verður gaman að fá ömmurnar, afann og alla hina sem koma vonandi að sunnan líka.
Villa tengdó, Dagný og Gabríel gista líklega hjá okkur yfir eina nótt, það verður bara gaman að fá þau í heimsókn. Brosandi

Mér finnst rosalega erfitt að Danni skuli missa af fyrsta afmælinu hennar Líneyjar,
það er erfitt fyrir hann sérstaklega. Gráta

En svona er lífið einsog hann Sissi vinur minn segir í annari hverri setningu... híhíhí. Ullandi

Við mæðgurnar höfum það annars bara gott,
erum alltaf að bralla eitthvað saman. Hlæjandi
Hvar væri ég án hennar?
Án hennar væri lífið ömurlegt.
Það er ekkert smá mikið sem þessi elska gefur mér. Brosandi


Sjáið hvað þessi elska er falleg Koss




Hér er mynd af Líney og kisu,
kisa fór til himna í gær greyjið Gráta
Guð geymi þig kisa okkar Koss

Jæja, ég ætla að fara gera eitthvað af viti, annað en að hanga í þessari tölvu.

Bæjó og munið að kvitta Koss
(hver ætlar að verða fyrstur til að skrifa í gestabókina?)
07. október 2006 klukkan 20:56
Hanna Stella Georgsdóttir
6 athugasemdir
06október

I´m back =)

Hæhæ..

Ég ákvað að byrja aftur að blogga.

Ég henti öllu útaf síðunni um daginn þegar ég var í vondu skapi Hissa
Svona getur maður nú verið vitlaus, híhíhí Skömmustulegur

Annars er allt gott að frétta af mér og Líney Mist.
Ég er búin að vera þrífa og fara í gegnum draslið sem leynist í skápunum mínum, ekkert smá dugleg.
Það er nottla afmæli á næsta leiti, Líney er að verða 1. árs þann 14. okt. Koss
Þetta er fljótt að líða.. hehe.
Það verður gaman að halda afmælið hennar og svo koma  margir að sunnan sem við hlökkum til að sjá.

Við komumst ekki til Danna í þessum mánuði því þetta kostar alltof mikið,
við förum til hans í byrjun nóvember. Brosandi
Vááá hvað ég sakna hans mikið, og hann saknar Líneyjar svoooooooo sárt. Óákveðinn
Hann hefur ekki séð hana í tvo mánuði.  Gráta

Jæja, ég er farin að sofa í hausinn á mér.
Hafið það bara gott og góða nótt. Brosandi
06. október 2006 klukkan 04:44
Hanna Stella Georgsdóttir
2 athugasemdir

Fylgdu hjartanu þínu

Þú getur ekki hlustað á allt sem aðrir vilji að þú gerir. Þú verður að hlusta á þitt eigið sjálf. Samfélagið, fjölskyldan, vinir og þeir sem eru þér kærastir, vita ekki hvað þú þarft að gera. Aðeins þú veist það og aðeins þú veist hvað er rétt fyrir þig. Byrjaðu núna. Þú munt þurfa að leggja mikið á þig. Þú munt þurfa að yfirvinna margar hindranir. Þú munt þurfa að stríða gegn betri vitund annarra og þú munt þurfa að sniðganga fordóma þeirra.En þú getur öðlast hvað sem þú óskar þér ef þú ert tilbúinn að reyna nógu mikið. Byrjaðu núna og þú munt lifa lífi sem er hannað fyrir þig, af þér sjálfum; og þú munt elska þitt eigið líf.

Auglýsing

Atburðarteljari

Fallega dóttir mín =)

Klukkan

Innskráningar kubbur

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...